fimmtudagur, nóvember 27, 2003
Allir í flensu
ég er ekki að meika þetta. Bergey var veik í viku eins og ég sagði um daginn, þá tók ég við, og í fyrradag veiktust svo Gunnhildur og Snorri már, þannig að nú búum við í flensubæli...en sem betur fer eru nú reyndar allir að lifna við aftur. Þetta verður nú sennilea í eitt af síðustu skiptunum sem ég skrifa hér á bloggið því að eitt veit ég þessu held ég ekki áfram, þetta bara á ekki við mig, er ekki svona týpa í þetta- en var samt gaman að prófa.
Takk allir sem nenntu að kíkja
kveðja Helga Hildur
Takk allir sem nenntu að kíkja
kveðja Helga Hildur
mánudagur, nóvember 24, 2003
veikindi
Bergey litla snúllan mín er tæplega 11 mánaða og er búin að vera veik núna í viku þannig að lítið hefur verið um nám hjá mér þessa dagana. Í gærkvöldi helltist svo flensan yfir mig þannig að þetta er ekki alveg að virka hjá mér og ekkert smá mikið að gera í skólanum, loka verkefnin bíða í röðum og öllum á að skila upp úr mánaðarmótum. Þannig að það er nóg að gera.... Annars er svo sem ekkert að frétta, bara búin að hanga heima og halda á skvísunni enda er hún alveg mömmu sjúk þessa dagana.
þriðjudagur, nóvember 18, 2003
mánudagur, nóvember 17, 2003
Geðveikir tónleikar
Halló, tónleikarnir sl. föstudag með Todmobil og Sinfó voru hreint frábærir, við fórum á Ruby Thusday að snæða á eftir og kíktum svo í bæinn, bara ýkt gott og notó kvöld, jæja læt þetta duga í bili verð að fara að læra.
mánudagur, nóvember 10, 2003
Tod og sinfó
Sinfonían og Todmobil framundan. Get ekki beðið, við ásamt Einari og Elísabetu og Önnu og Ívari ætlum að skella okkur á tónleikana og síðan stendur til að fara út að borða og Rúsínan er að gista á hóteli. Verður örugglega ýkt notó og vissulega höfum við öll gott af þessu uppátæki.
Í fyrra bauð ég Gunna mínum í óvissuferð í Rvk. og var það á Sálina og Sinfó og síðan á Tabas bar það var þvílíkt gaman en reyndar sváfum við bara í okkar eigin rúmi þá helgina...enda var mín kasólétt....
Annars lítið í gangi, bara þetta venjulega...læra, taka til, skipta á bleiju os.frv. Það er bara gúrkutíð þessa dagana.

þriðjudagur, nóvember 04, 2003
GSMblogg prufa
power point
Ég er svo til búin með glæruverkefnið. Mig minnir að það telji 10 glærur, get bætt við ef það er ékki nóg. Set verkefnið inn á heimasíðuna mína mjög fljótlega, kannski bara á morgun.
jæja það er búið að vera geðveikt að gera hjá mér þannig að ég hef því miður látið bloggið alveg eiga sig. Reyndar finnst mér þetta dagbókarform ekki beint henta mér. Ég er bara ekki þessi týpa sem tjáir sig á netinu, finnst ég ekki hafa neitt að segja. Svona er þetta nú bara.....týpískur dagur hjá mér er bara hræðilega einsleitur..... heima allan daginn, skipta á litlu skvísunni, sníta, o.s.frv.
Sem stendur er vitlaust veður, snjór og læti og bara ýkt gott að sitja inni í hlýjunni fyrir framan tölvunna, Bergeyju litlu var nú samt hent út í vagn að sofa en n.b. hún er þó höfð í skjóli á bak við. Hvernig ætli standi á því að börn sofa svona miklu betur uti í vagni en inni???
Jæja verð dugleg að babla eitthvað næstu daga.
"sjáumst"